úff.. ég held að það hafi verið rétta hjá henni Hildi minni að ég
sé haldin Kaupæði!!! ég verlsa og versla úff... þetta er
hryllilegt. en í dag þá er ég búin að kaupa mér 1 hálsmen, 1
armband, 1 netaskó í hagkaup og 1 Diesel skó ( kostuðu bara 2000
vori á 9000 ) og ég by the way keypti mér 4 pör útí London þannig
ég held ég sé orðin biluð, það er eitthvað að hjá mer held ég... ég
verð að fara að hugsa betur sko. úff.... þetta er ekki nógu gott.
ég skammast mín næstum ( alltaf gaman að verlsa samt ) og svo er ég
að fara á miðvikudaginn í sjónmælingu og kaupa mér geggjað flott
Diesel gleraugu bara geggjað sko

hlakka ekkert smá til að fá þau

En ég var að skoða síðuna hans Adda þar sem hann og Gunni eru
búnir að skrifa pistil um hana Eddu Báru, hann er fyndinn,
viðurkenni það alveg en hann fór samt soltið fyrir hjartað mitt. En
ég veit hann er bara bull en samt, ég er ekkert búin að fylgjast
með þessu og svo sér maður pistilinn, ég bara átti ekki orð

En
allt í góðu lagi samt, Edda tók þessu ekkert nærri sér þannig mér
er alveg sama en mér fannst þetta samt frekar svona æi.. ég veit
ekki.

ég náttlega þarf að skipta mér af öllu sem ömurlegur
ávani, sorry fólk er að reyna að laga þetta.
En mig dreymdi alveg fáranlegan draum í nótt... úff, ég var
eyðilögð þegar ég vaknaði

ég þakka bara fyrir að þetta gerðist
ekki í alvöru.. En mig dreymdi að ég fengi Oktaviuna hans Adda í
láni og ég var að bakka í stæði á bílnum hans og gleymi að hann er
með skotti þannig ég klessi á vegginn og bílinn í rúst... ég bara
fékk áfall, mér leið ömurlega og ég grenjaði bara, var eitthvað að
reyna að redda þessu en gekk ekki neitt, en ég dreymdi ekki það
langt að ég sagði Adda frá ég væri búin að klessa bílinn hans,
vaknaði við að ég var að þurrka tárin framan úr mér, vá hvað mér
leið ílla.. og svo dreymdi mig líka að ég væri á jarðarför hjá
einhverjum ungum dreng sem ég þekki ekki neitt og það var búið að
setja á kistuna hans eihverja svona fyndin komment sem hann hefði
viljað að væri á kistunni sinni og eitthvað svona rugl, og svo var
ég ekki viss hvort bæði afi og pabbi væru dánir eða hvort það væri
bara afi.

svona er maður vitlaus...